Jan 17, 2007
Ef einhver kíkir hér inn ennþá...þá er ég hætt hér. Komin með nýtt og betra blogg:
www.thoram.bloggar.is
Sendi öllum sem vilja lykilorðið góða. Skilið eftir skilaboð hér eða sendið póst á thoramh@hotmail.com
Sjáumst á nýjum stað!
Posted at 07:34 am by thora
Dec 1, 2006
Kominn tími á blogg. Ástæðan? Gleði og hamingja. Hví? Vegna þess að Jóladagatal Sjónvarpsins er eitthvað til að hlakka til og eitthvað sem enginn má láta framhjá sér fara! Blámi is back!!! Sem og fruntanlega konan sem er svo ótrúlega fyndin og skemmtileg! A.m.k. í minningunni.....Það eru smá líkur á því að ég dragi þessa færslu tilbaka á morgun eftir að hafa horft á þáttinn í dag...sumt eldist hreinlega ekki svo vel....Þó hef ég fulla trú og bíð spennt eins og litlu börnin eftir fyrsta þættinum.
Annars er það helst í fréttum að ég fór (þökk sé Bylgju fögru) í klippingu um daginn. Já, það er fréttnæmt þar sem ég fer u.þ.b. einu sinni á ári í klippingu... Kona sem vinnur á spítalanum og ég þekki ekki neitt sagði svo nett í gær: ,,Það er bara allt annað að sjá þig!" Ókei, ég gerði mér grein fyrir að ástandið væri slæmt, en svona slæmt, vá! Að nánast ókunnug kona segi svona við mig, það hlýtur að þýða að ég hafi helst átt að ganga með hauspoka eða bara halda mig heima við fyrir.... Sátt er ég hins vegar með nýja hárið og það greinilega gleður fullt af öðru fólki og hvað er þá hægt að biðja um meira?
Gleðilegan fullveldisdag!
Posted at 12:23 am by thora
Nov 10, 2006
Fínn dagur í dag. Fór á ráðstefnu á Grand hótel og ýmislegt situr eftir, þó aðallega atriðið þegar fundarstjórinn var að kynna inn okkar ágæta heilbrigðisráðherra sem átti að vera með upphafserindi. Það hljómaði nokkurn veginn svona:
Fundarstjóri: "...og þá vil ég biðja Frið Sifleifsdóttur að koma hingað upp.."
Allir ráðstefnugestir: Litu hvor á annan og hugsuðu allir sem einn: ,,Sagði hún virkilega Frið Sifleifsdóttir, eða er ég orðin(n) geðveik(ur)?!?!?!?!"
Enginn skellti uppúr eða sagði neitt, fundarstjórinn fattaði sjálf ekki neitt og enginn leiðrétti hana og þá allra síst Frið okkar sem steig keik í pontu og hélt sínu striki eins og ekkert hafði í skorist.
Einnig vakti athygli mína hversu margir gsm símar hringdu á ráðstefnu þessari. Ekki var það einn, eða tveir eða þrír...ég hætti að telja þegar 5 símar voru búnir að hringja og allir mjög hátt. Einn gemsinn var meira að segja stillur á vekjara og hringdi hann tvisvar MJÖG hátt og í dágóða stund hvort skipti. Er fólk virkilega ekki að ná þessu þegar fyrsti síminn hringir, að athuga statusinn á sínum síma og setja hann á sælent svo þetta komi ekki fyrir aftur?? Þetta þótti mér afar sérstakt að upplifa.
Að lokum vil ég biðja alla sem eru í fýlu, finnst líf sitt glatað eða nýbúin(n) að kvarta undan einhverju varðandi stöðu sína að kíkja á þetta viðtal:
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301645/3
Hætta svo þessu væli og það strax.
Posted at 12:24 pm by thora
Nov 9, 2006
...þetta er eitt af þeim:
1. miðnafnið þitt: 2. Aldur: 3. Single or Taken: 4. Uppáhalds bíómynd: 5. Uppáhalds lag: 6. Uppáhaldshljómsveit: 7. Dirty or Clean: 8. Tattoo eða göt: 9. Þekkjumst við persónulega? 10. Hver er tilgangurinn með lífinu? 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum? 12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli? 13. Besta minningin þín um okkur? 14. Myndir þú gefa mér nýra? 15. Segðu eitthvað skrýtið um þig: 16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik? 17. Getum við hist og bakað köku? 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega? 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig? 20. Finnst þér ég góð manneskja? 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið? 22. Finnst þér ég aðlaðandi? 23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari? 24. Í hverju sefuru? 25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla? 26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér? 27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera? 28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
Svör óskast í commentum..
Posted at 05:19 am by thora
Nov 3, 2006
Margrét Ásgeirsdóttir unnusta Helga Guðjóns og kærasta Kára Stef fagnar í dag 26. afmælisdegi sínum.
Innilegar hamingjuóskir í tilefni dagsins mín fagra frú!
Posted at 05:46 am by thora
Oct 23, 2006
Staðsetning: Strandvegur, Garðabæ Atburður: Horft á DVD diskinn: Draumalandið Persónur: Helgi Hrafn og föðursystir hans.
Þ: ,,Æ, sjáðu þessa (gula álfamærin efst í hægra horninu), hún er dáldið fyndin".
HHA: ,,Já!"
Þ: ,,Hún er svoldið þybbin".
HHA: ,,Já...og hún er með rosalega stórar brjóstur!!".
Þ: ,,Já, finnst þér það?"
HHA: ,,Já, stærri en mamma!".
Þ: ,,Já, er það?"
HHA: ,,Já og meira segja stærri en þín!!!".
...sagði barnið og mændi á risa júúúllurnar á frænku sinni sem greinilega áttu að vera þær stærstu í heiminum þar til bústna álfamærin kom til sögunnar.
...það er skemmst frá því að segja að þegar þarna var komið við sögu var föðursystirin látin úr hlátri. Þess ber einnig að geta að drengur þessi er yfirleitt frekar feiminn og alls ekki mikið að tjá sig um hluti sem þessa. Þessar staðhæfingar hans komu því eins og þruma úr heiðskýru lofti og glöddu gömlu frænkuna meira en orð fá lýst!
Posted at 01:06 am by thora
Oct 19, 2006
Undanfarin ár hefur mikið mál verið gert úr því þegar sýndar hafa verið auglýsingar þar sem áfengi er söluvaran. Ég svo sem ætla ekkert að fara að setja mig upp á móti því en þá vil ég einnig sjá annars konar auglýsingar bannaðar. Þá er ég að meina auglýsingar þar sem neitendur eru blekktir og það all svaðalega.
Mjög sterkt í huga mér eru auglýsingar þar sem morgunkornið Special K er auglýst. Í þeim auglýsingum er lýðnum gert það ljóst að með því að neita morgunkornsins alla morgna og helst oftar, muni það leiða af sér að neitendur muni grennast, og það ekkert smá heldur. Þybbnar konur eiga að öðlast grannar og fallegar línur eftir nokkra vikna neyslu á morgunkorninu, enda inniheldur góssið ekki nema 1% fitu. Það fylgir þó ekki sögunni að venjulega, gamla, góða kornflexið inniheldur mjög svipað magn af fitu, ef ekki minna en munurinn er mun meiri þegar sykurinnihald kornflexanna er skoðað. Það sem fáir vita, og kemur alls ekki fram í auglýsingum Special K, er að fitulausa og ofurgrennandi kornflexið er stútfullt af sykri!! Þannig að sléttur magi og grannt mitti verður mjög líklega ekki staðreynd eftir neyslu morgunkornsins..... Þess ber svo einnig að geta að sykurmagnið í venjulega kornflexinu er talsvert minna en í Special K.
Annað sem er mér mjög minnistætt er þegar við Bylgja vorum oftar en ekki staddar í Hagkaup (eflaust á leið í Nammilandið) og þar stendur kona sem er að kynna nýja tegund af köku. Auðvitað runnum við sælkerarnir á lyktina og mættum skælbrosandi fyrir framan konuna. Hún tók vel á móti okkur og sagðist vera með gasalega fína megrunarköku. Alveg snilldar köku sem væri svo gríðarlega holl að það væri ekki nema 1% fita í henni!! Does something ring a bell.....??!!?? Allavega, þar sem við vildum kanna hvort þetta væri virkilega sannleikur, að kakan væri svona megrunarvæn (enda vitlausar í allt diet og lite...) ákvað ég að spyrja konukvölina hversu mikill sykur væri í gúmmelaðinu. Kom þá upp úr krafsinu að hún hafði ekki hugmynd um það! Tönlaðist þess í stað á því að hún væri voða holl með bara eitt prósent af fitu!! Ég hrifsaði þá kökukassann af henni (smá ýkt atburðarrás til að gera söguna ekki alveg jafn leiðinlega..) og sáum, okkur til ekki svo mikillar furðu að auðvitað var kökulufsan full af sykri og öðru svipuðu góssi. Kerlingargreyið var fljót að benda okkur á að yfirgefa svæðið sem fyrst svo við færum ekki að breiða út illa boðskapinn!
Þetta eru bara tvö lítil dæmi. Mér finnst svona blekkingar rangar. Auðvitað væri frábært ef allir gætu lært að lesa utan á þær vörur sem þeir kaupa, en það er bara alls ekki svo auðvelt að finna út úr þessu og talandi ekki um ef innihaldslýsingar eru á erlendu tungumáli.
Posted at 08:01 am by thora
Oct 14, 2006
Allir að heilsa upp á Stefskí!!
Vil hvetja þá sem eiga leið í Smáralind þessa helgina til að stara ekki ofan í gólfið eða taka stóran sveig þegar þið mætið þessum unga herramanni. Fallegt mjög væri ef sem flestir tækju þátt í örstuttri könnun hjá Stefskí mínum svo hann og partnerinn hans nái takmarki sínu um helgina. Ég sjálf reyni að forðast fólk sem er að áreita annað fólk í Smáralind og Kringlunni, en ég ætla að reyna að taka mig á í þeim málum og virða þetta veslings fólk viðlits. Sérstaklega þetta unga fólk sem er bara að reyna að vinna sér inn smá aur..
Fór annars í smá eggjahljóðaleiðangur áðan. Hitti bæði Hlyn og Helga Hrafn og guð minn góður, lyktin af þessum börnum!! Þeir eru alltaf nýbaðaðir og hreinir þegar ég hitti þá og ilmurinn er yndislegur! Ungbarnalykt er náttúrulega best í heimi en lyktin af Helga er alls ekkert síðri...Nei, ég er ekki gengin af vitinu, þetta er sannleikur! Ég held að það séu einhver efni í þessari lykt af börnum sem fær eggjastokkana til að klingja, eitthvað ávanabindandi sem fær mann til að halda að börn séu það yndislegasta í heimi. Þau eru það að sjálfsögðu en þetta með lyktina gerir mann algjörlega sjúkan í þau! Karlmenn virðast þó langflestir vera ónæmir fyrir þessu...
Allavega, ilmur af börnum og könnun hjá Stefskí í Smáralind er algjörlega málið þessa helgina!
Posted at 07:58 am by thora
Oct 8, 2006
Ljómandi fínn dagur í dag. Skírn hjá Búbba litla hjá Lillý og Þorleifi á Strandveginum og þar var svaka veisla. Fullt af góðu fólki og hellingur af hrikalega góðum veitingum! Skírnin sjálf gekk ljómandi vel og drengurinn fékk loksins nafn. Hlynur Axelsson fær Búbbinn minn að heita og er ég afar sátt. Nafnið er sterkt og gott og ekki eitt af þessum tískunöfnum sem ég er búin að fá nett ógeð á. Mamma var samt frekar leið yfir því að faðir Margrétar fengi ekki nafna, en ég er búin að lofa henni að ef við Þorkell eignumst einhvern tíma strák verði hann skírður í höfuðið á Margrétarpabba: Þorleifur Guðmunds Þorkelsson.
Fékk svo rétt í þessu sms frá aldagamalli vinkonu minni; henni Þórunni Ósk. Þórunn varð móðir í kvöld og fékk hún lítinn strák. Fær hún innilegar hamingju- og gleðióskir í tilefni þess!
Að lokum verð ég að segja að önnur Þórunn; Þórunn Bylgja nokkur, er snillingur og kann hún svo sannarlega að gera góðan dag enn betri!! Takk, Bylgja!!
Posted at 01:39 pm by thora
Oct 3, 2006
- Tengdapabbi er í heimsókn. Hann mun gista í ,,rúminu hennar Lísu" næstu nætur og á vonandi eftir að sofa vel svo hann geti hugsað sér að koma aftur í heimsókn, enda fyrirmyndar húsgestur, þrifalegur og þægilegur á allan hátt.
- Önnur körfuboltaæfingin var í gærkvöldi og tókst svona líka ljómandi vel. Það voru 10 sprækar konur sem mættu og náðum við að spila í næstum 40 mínútur. Líkamlegt form þeirra kvenna sem þarna voru samankomnar var mis gott, eða kannski frekar mis slæmt. Blóðbragð í munni og oföndun voru ekki óalgeng líkamleg einkenni þetta kvöld en gleðin var við völd allan tímann og það er það sem mestu máli skiptir. Ansi á maður nú samt langt í langt með að ná upp fyrra formi og skotnýtingu, en þetta kemur vonandi allt saman. Ég hlakka allavega til að mæta næst og sjá hvort formið hafi breyst þó ekki nema örlítið til hins betra.
- Kreiiiiiisí að gera í vinnunni og fregnir af andláti mínu í lok vikunnar verða hugsanlega ekki stórlega ýktar...
- Skírn hjá Búbba litla á sunnudaginn, það verður nú ekki leiðinlegt að fá að heyra nafnið á yndislega drengnum mínum.
- Rosalega finnst mér bein útsending fá Alþingi leiðinleg....Verð seint fullorðin er ég hrædd um....
Hafið þið það gott og verið góð hvort við annað!
Posted at 12:44 pm by thora
|
|