|
- Tengdapabbi er í heimsókn. Hann mun gista í ,,rúminu hennar Lísu" næstu nætur og á vonandi eftir að sofa vel svo hann geti hugsað sér að koma aftur í heimsókn, enda fyrirmyndar húsgestur, þrifalegur og þægilegur á allan hátt. - Önnur körfuboltaæfingin var í gærkvöldi og tókst svona líka ljómandi vel. Það voru 10 sprækar konur sem mættu og náðum við að spila í næstum 40 mínútur. Líkamlegt form þeirra kvenna sem þarna voru samankomnar var mis gott, eða kannski frekar mis slæmt. Blóðbragð í munni og oföndun voru ekki óalgeng líkamleg einkenni þetta kvöld en gleðin var við völd allan tímann og það er það sem mestu máli skiptir. - Kreiiiiiisí að gera í vinnunni og fregnir af andláti mínu í lok vikunnar verða hugsanlega ekki stórlega ýktar... - Skírn hjá Búbba litla á sunnudaginn, það verður nú ekki leiðinlegt að fá að heyra nafnið á yndislega drengnum mínum. - Rosalega finnst mér bein útsending fá Alþingi leiðinleg....Verð seint fullorðin er ég hrædd um.... Hafið þið það gott og verið góð hvort við annað! |
| Þóra October 8, 2006 01:39 PM PDT Lísa: Geddi litli frá Sæbakka var mjög kátur og hress með rúmið. Svaf eins og engill allar næturnar og gæti ekki verið sáttari:) Elva: Hvað meinaru? Orkan er nú ekki svo mikil en maður drífur sig nú í körfu því það er svo gaman! :) Ps. Eigum við ekki að fara að hittast eitthvað?? | ||
| Elva October 7, 2006 03:37 AM PDT Orkan í þér kona góð!!!! | ||
| Lísa October 4, 2006 07:11 AM PDT Er nú ekki viss um að ég tími að láta rúmið mitt en allt fyrir góðan gest. Svo munu draumarnir örugglega vera góðir þar sem það hafa aðeins góðir einstaklingar sofið í þessu rúmi að ég held. :) Finnst samt voða gaman að heyra að þetta sé rúmið mitt. :) | ||
| Leave a Comment: |