Entry: Skírn og feira Oct 8, 2006



Ljómandi fínn dagur í dag. Skírn hjá Búbba litla hjá Lillý og Þorleifi á Strandveginum og þar var svaka veisla. Fullt af góðu fólki og hellingur af hrikalega góðum veitingum! Skírnin sjálf gekk ljómandi vel og drengurinn fékk loksins nafn.
Hlynur Axelsson fær Búbbinn minn að heita og er ég afar sátt. Nafnið er sterkt og gott og ekki eitt af þessum tískunöfnum sem ég er búin að fá nett ógeð á.
Mamma var samt frekar leið yfir því að faðir Margrétar fengi ekki nafna, en ég er búin að lofa henni að ef við Þorkell eignumst einhvern tíma strák verði hann skírður í höfuðið á Margrétarpabba: Þorleifur Guðmunds Þorkelsson.

Fékk svo rétt í þessu sms frá aldagamalli vinkonu minni; henni Þórunni Ósk. Þórunn varð móðir í kvöld og fékk hún lítinn strák.
Fær hún innilegar hamingju- og gleðióskir í tilefni þess!

Að lokum verð ég að segja að önnur Þórunn; Þórunn Bylgja nokkur, er snillingur og kann hún svo sannarlega að gera góðan dag enn betri!! Takk, Bylgja!!

   3 comments

Þóra
October 9, 2006   12:30 PM PDT
 
Takk fyrir mínar kæru! :)
Bylgja
October 9, 2006   01:09 AM PDT
 
til hammara með hlyn litla!

og það var nú lítið að þakka!
Lísa
October 9, 2006   12:58 AM PDT
 
Til hamingju með litla guttann. Hlynur hljómar vel og mun hann örugglega bera nafnið vel. Kiss kiss.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments