|
Vil hvetja þá sem eiga leið í Smáralind þessa helgina til að stara ekki ofan í gólfið eða taka stóran sveig þegar þið mætið þessum unga herramanni. Fallegt mjög væri ef sem flestir tækju þátt í örstuttri könnun hjá Stefskí mínum svo hann og partnerinn hans nái takmarki sínu um helgina. Ég sjálf reyni að forðast fólk sem er að áreita annað fólk í Smáralind og Kringlunni, en ég ætla að reyna að taka mig á í þeim málum og virða þetta veslings fólk viðlits. Sérstaklega þetta unga fólk sem er bara að reyna að vinna sér inn smá aur.. Fór annars í smá eggjahljóðaleiðangur áðan. Hitti bæði Hlyn og Helga Hrafn og guð minn góður, lyktin af þessum börnum!! Þeir eru alltaf nýbaðaðir og hreinir þegar ég hitti þá og ilmurinn er yndislegur! Ungbarnalykt er náttúrulega best í heimi en lyktin af Helga er alls ekkert síðri...Nei, ég er ekki gengin af vitinu, þetta er sannleikur! Ég held að það séu einhver efni í þessari lykt af börnum sem fær eggjastokkana til að klingja, eitthvað ávanabindandi sem fær mann til að halda að börn séu það yndislegasta í heimi. Þau eru það að sjálfsögðu en þetta með lyktina gerir mann algjörlega sjúkan í þau! Karlmenn virðast þó langflestir vera ónæmir fyrir þessu... Allavega, ilmur af börnum og könnun hjá Stefskí í Smáralind er algjörlega málið þessa helgina! |
| Linda October 20, 2006 04:21 AM PDT Áfram Þóra....... ekki láta ruglið í Bylgju aftra þér :) Koma svo með eitt krakkakríli í þennan heim! | ||
| Þóra October 17, 2006 08:21 AM PDT Skinkfán: Já, þið stóðuð ykkur vel! Bylgjus: Þetta er eflaust rétt hjá þér og mun ég því halda uppteknum hætti við að nusa af Stefáni mínum vel og reglulega áfram! | ||
| Skinkfán October 16, 2006 10:51 AM PDT Já, það hefðu fleiri mátt taka þessa blessuðu könnun, en takmarkið náðist! Takk fyrir að mæta :D | ||
| Bylgja October 16, 2006 03:11 AM PDT ekki láta gabbast þóra!! þessi lykt er einmitt til þess að sterkar og yfirleitt rökhugsandi konur láta glepjast. nusaðu bara af stefáni þór í staðin! | ||
| Leave a Comment: |