Entry: Auglýsingar Oct 19, 2006



Undanfarin ár hefur mikið mál verið gert úr því þegar sýndar hafa verið auglýsingar þar sem áfengi er söluvaran. Ég svo sem ætla ekkert að fara að setja mig upp á móti því en þá vil ég einnig sjá annars konar auglýsingar bannaðar. Þá er ég að meina auglýsingar þar sem neitendur eru blekktir og það all svaðalega.

Mjög sterkt í huga mér eru auglýsingar þar sem morgunkornið Special K er auglýst. Í þeim auglýsingum er lýðnum gert það ljóst að með því að neita morgunkornsins alla morgna og helst oftar, muni það leiða af sér að neitendur muni grennast, og það ekkert smá heldur. Þybbnar konur eiga að öðlast grannar og fallegar línur eftir nokkra vikna neyslu á morgunkorninu, enda inniheldur góssið ekki nema 1% fitu. Það fylgir þó ekki sögunni að venjulega, gamla, góða kornflexið inniheldur mjög svipað magn af fitu, ef ekki minna en munurinn er mun meiri þegar sykurinnihald kornflexanna er skoðað. Það sem fáir vita, og kemur alls ekki fram í auglýsingum Special K, er að fitulausa og ofurgrennandi kornflexið er stútfullt af sykri!! Þannig að sléttur magi og grannt mitti verður mjög líklega ekki staðreynd eftir neyslu morgunkornsins..... Þess ber svo einnig að geta að sykurmagnið í venjulega kornflexinu er talsvert minna en í Special K.

Annað sem er mér mjög minnistætt er þegar við Bylgja vorum oftar en ekki staddar í Hagkaup (eflaust á leið í Nammilandið) og þar stendur kona sem er að kynna nýja tegund af köku. Auðvitað runnum við sælkerarnir á lyktina og mættum skælbrosandi fyrir framan konuna. Hún tók vel á móti okkur og sagðist vera með gasalega fína megrunarköku. Alveg snilldar köku sem væri svo gríðarlega holl að það væri ekki nema 1% fita í henni!! Does something ring a bell.....??!!??
Allavega, þar sem við vildum kanna hvort þetta væri virkilega sannleikur, að kakan væri svona megrunarvæn (enda vitlausar í allt diet og lite...) ákvað ég að spyrja konukvölina hversu mikill sykur væri í gúmmelaðinu. Kom þá upp úr krafsinu að hún hafði ekki hugmynd um það! Tönlaðist þess í stað á því að hún væri voða holl með bara eitt prósent af fitu!! Ég hrifsaði þá kökukassann af henni (smá ýkt atburðarrás til að gera söguna ekki alveg jafn leiðinlega..) og sáum, okkur til ekki svo mikillar furðu að auðvitað var kökulufsan full af sykri og öðru svipuðu góssi.
Kerlingargreyið var fljót að benda okkur á að yfirgefa svæðið sem fyrst svo við færum ekki að breiða út illa boðskapinn!

Þetta eru bara tvö lítil dæmi. Mér finnst svona blekkingar rangar. Auðvitað væri frábært ef allir gætu lært að lesa utan á þær vörur sem þeir kaupa, en það er bara alls ekki svo auðvelt að finna út úr þessu og talandi ekki um ef innihaldslýsingar eru á erlendu tungumáli.

 

   7 comments

Þóra
October 22, 2006   01:10 PM PDT
 
Elva: Það er allavega vonandi að fólk fari að velta þessu aðeins fyrir sér að þó eitthvað sé fitulaust/lítið, sé það ekki endilega hollt.
Þessi vika er orðin ansi busy, en nánast hvenær sem er í næstu viku (30-3 nóv) er ég til í tusku!

Anne: I love you!! :*
Anne
October 22, 2006   12:59 PM PDT
 
eh eh eeeehh
Elva
October 20, 2006   03:43 PM PDT
 
ojjjj var búin að skrifa þvílíkt mikið. það greinilega kom ekki!!! Allavega.... held að málið sé þannig að í dag er það ekki fituinnihaldið sem gerir okkur feit heldur sykurmagnið. Þannig að ég segji bara halelúja fyrir þessari umræðu!!!!! Held það sé nú ansi langt síðan ég át eitthvað mikið magn af fitu, en er nú samt ekki sú mjóasta hér á fróni,, en sykur er aftur á móti minn akkilesarhæll!!! Hvenær eigum við svo að hittast honey???
Elva
October 20, 2006   03:41 PM PDT
 
Fita smita!!!!!!! Fitu innihald er ekki vandi okkar nútímafólks, heldur sykurinn.. !!! segji því halelúja fyrir þessari umræðu þinni kona góð!!!! Hvenær eigum við svo að hittast???
Þóra
October 19, 2006   02:37 PM PDT
 
Bylgja: Ég elska þig líka!...sem og hina hlutina sem þú nefndir :)
Námskeið er ég svo miklu meira en til í!! Byrjum að skipuleggja í pottapartýi á lau! :)

Skinki litli: Hvernig væri það??!! Þú sem verðandi forsætisráðherra, viltu ekki taka að þér að ræða við kauða??
Skinkfán
October 19, 2006   10:40 AM PDT
 
Finnst mér að nýlega skipaður ríkisstarfsmaðurinn "Talsmaður Neytenda" ætti að láta sig þetta varða þ.e. villandi auglýsingar og merkingar.
Bylgja
October 19, 2006   08:33 AM PDT
 
ég elska sykur, ég elska fitu og ég elska þig!

hlakka til að fara í nammiland á laugardaginn :) VEIJ!!

svo skulum við grönnu og stinnu halda námskeið fyrir fólk sem kann ekkert og sýna því réttu leiðin að lífshamingjunni og hvernig skal lesið aftan á dótið í búðum.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments