Entry: Lífið er gott Nov 10, 2006



Fínn dagur í dag. Fór á ráðstefnu á Grand hótel og ýmislegt situr eftir, þó aðallega atriðið þegar fundarstjórinn var að kynna inn okkar ágæta heilbrigðisráðherra sem átti að vera með upphafserindi. Það hljómaði nokkurn veginn svona:

Fundarstjóri:  "...og þá vil ég biðja Frið Sifleifsdóttur að koma hingað upp.."

Allir ráðstefnugestir: Litu hvor á annan og hugsuðu allir sem einn: ,,Sagði hún virkilega Frið Sifleifsdóttir, eða er ég orðin(n) geðveik(ur)?!?!?!?!"

Enginn skellti uppúr eða sagði neitt, fundarstjórinn fattaði sjálf ekki neitt og enginn leiðrétti hana og þá allra síst Frið okkar sem steig keik í pontu og hélt sínu striki eins og ekkert hafði í skorist.

Einnig vakti athygli mína hversu margir gsm símar hringdu á ráðstefnu þessari. Ekki var það einn, eða tveir eða þrír...ég hætti að telja þegar 5 símar voru búnir að hringja og allir mjög hátt. Einn gemsinn var meira að segja stillur á vekjara og hringdi hann tvisvar MJÖG hátt og í dágóða stund hvort skipti.
Er fólk virkilega ekki að ná þessu þegar fyrsti síminn hringir, að athuga statusinn á sínum síma og setja hann á sælent svo þetta komi ekki fyrir aftur??
Þetta þótti mér afar sérstakt að upplifa.

Að lokum vil ég biðja alla sem eru í fýlu, finnst líf sitt glatað eða nýbúin(n) að kvarta undan einhverju varðandi stöðu sína að kíkja á þetta viðtal:

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301645/3

 

Hætta svo þessu væli og það strax.

   4 comments

Bylgja
November 23, 2006   06:21 AM PST
 
lífið er vissulega gott og fallegt. því er kjörið að þú skrifir eitthvað gott og fallegt inn á þessa síðu!
Lísa
November 22, 2006   11:19 AM PST
 
Kona, það eru 12 dagar síðan þú skrifaðir síðast og mig er farið að hungra í meira.
Þóra
November 21, 2006   12:19 AM PST
 
Segðu!!
Heiðdís
November 15, 2006   06:40 AM PST
 
Jeminn eini! úfffffff

úffff

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments