Entry: Veij, veij, veij! Dec 1, 2006



Kominn tími á blogg. Ástæðan? Gleði og hamingja. Hví? Vegna þess að Jóladagatal Sjónvarpsins er eitthvað til að hlakka til og eitthvað sem enginn má láta framhjá sér fara! Blámi is back!!! Sem og fruntanlega konan sem er svo ótrúlega fyndin og skemmtileg! A.m.k. í minningunni.....Það eru smá líkur á því að ég dragi þessa færslu tilbaka á morgun eftir að hafa horft á þáttinn í dag...sumt eldist hreinlega ekki svo vel....Þó hef ég fulla trú og bíð spennt eins og litlu börnin eftir fyrsta þættinum.

Annars er það helst í fréttum að ég fór (þökk sé Bylgju fögru) í klippingu um daginn. Já, það er fréttnæmt þar sem ég fer u.þ.b. einu sinni á ári í klippingu...
Kona sem vinnur á spítalanum og ég þekki ekki neitt sagði svo nett í gær: ,,Það er bara allt annað að sjá þig!"
Ókei, ég gerði mér grein fyrir að ástandið væri slæmt, en svona slæmt, vá! Að nánast ókunnug kona segi svona við mig, það hlýtur að þýða að ég hafi helst átt að ganga með hauspoka eða bara halda mig heima við fyrir....
Sátt er ég hins vegar með nýja hárið og það greinilega gleður fullt af öðru fólki og hvað er þá hægt að biðja um meira?

Gleðilegan fullveldisdag!

   3 comments

Heiðdís
January 16, 2007   06:26 AM PST
 
Villtu gjöra svo vel að fara að blogga kona!!! ég er alveg komin í þrot:)
Þóra
December 3, 2006   05:15 AM PST
 
takk og sömuleiðis með þetta allt!
Bylgja
December 1, 2006   02:44 AM PST
 
Gleðilegan Bláma (er líka fáááááránlega spennt fyrir honum),
Gleðilega Klippingu
og
Gleðilegan Afmælisdaginn hans Magna!!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments